Jarðtæknifélagið
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Fræðsla
  • Ráðstefnur
  • Tenglar
  • Um félagið
    • Aðalfundir
    • Almennir fundir
    • Ungir félagar
    • Heiðursfélagar
AI 13.12.2020
Nýtt nám  - Jarðvirkjun

Nýtt nám er að hefjast i Tækniskólanum sem kallast Jarðvirkjun.  Eins og segir á heimasíðunni er: „Jarðvirkjun er nýtt starfs­heiti yfir þá sem vinna hjá jarðverk­tökum við m.a. land­mótun, mokstur, efn­is­flutning, jarðlagna­vinnu, und­ir­búning vega, yfirborðsfrá­gang og sam­bærileg verk.“  Sjá nánar: https://tskoli.is/namsbraut/jardvirkjun/

Námið verður í boði frá hausti 2021 bæði fyrir þá sem hyggjast vinna í þessum starfs­greinum í framtíðinni og fyrir þá sem nú þegar eru starf­andi.  Eins verður hægt að taka allt námið eða sitja eitt og eitt námskeið.   Þar sem þetta er alveg glænýtt nám er verið að leita að fólki til að taka þátt í að þróa og kenna námskeiðin.  Hérna getum við komið sterkt inn !
Jón Hjalti Ásmundsson og Rafn Magnús Jónsson eru tengiliðir og umsjónarmenn með náminu. Báðir eru þeir með vélagrunn en engan grunn í okkar fagi.   Enda eru þeir að leita eftir fólki sem getur aðstoðað við að setja upp áfangana/módúlana (velja lesefni, gera æfingar, útbúa kennsluefni), og hins vegar að sjá um kennsluna (þetta getur auðvitað verið sama fólkið). 
Þeir eru líka alveg til í að halda kynningu fyrir okkur ef það er áhugi.  Getum meira að segja skellt í rafrænan fund á Teams með litlum fyrirvara. 

Ef einhver sem þetta les er tilbúinn til að bjóða sig fram í  kennslu eða gagnagerð, hafið þá samband við Jón Hjalta/[email protected]  eða Rafn [email protected] sem allra fyrst.

​Þeir sem hafa áhuga á meiri upplýsingum geta sent á okkur [email protected] (og/eða Jón Hjalta og Rafn) og við skellum í sameiginlegan upplýsingafund um námið fljótlega. 
Okkur grunar að hluti af þessari vinnu geti flokkast sem „þægileg innivinna“ fyrir þann sem býr yfir allri reynslunni og þekkingunni ;) 

​
Picture
Jarðtæknifélag Íslands
The Icelandic Geotechnical Society
Contact by e-mail


Helstu stuðningaðilar JTFÍ eru: